Auður litla

Ég veit að ég er löt við að skrifa, en það virkar ekkert að reka á eftir mér;-)

laugardagur, september 06, 2003

Vá! Haldiði að ég hafi ekki verið bloggari vikunnar hjá Ýri! Gott hjá mér að ákveða að byrja að bloga akkurat þegar vikan er að verða búin;-)
Jæja, þá er sumarfríið mitt búið og ég aftur byrjuð að blogga (sjáum allavega til hvernig gengur).
Ég hefði kanski ekki átt að taka mér sumarfrí í bloggi þar sem þetta var alveg mjög gott sumar og frekar viðburðaríkt - allavega hef ég alveg nokkrar sögur sem ég hefði getað deilt með ykkur. Ég var t.d. rænd (hafa nú flestir heyrt þá sögu) og lenti í leynilögreglumáli, fór í útilegur og djammaði alveg fullt bæði með og án matarklúbbsins.
Nú er skólinn byrjaður og ég er alveg hæst ánægð með hversu vel var tekið á móti okkur nýnemum. Finnst ég samt frekar ein eitthvað í stórum skóla þar sem ég þekki mjög fáa en það á vonandi eftir að rætast úr því.
Ætla bara að hafa þetta stutt til að byrja með, er svona aðeins að hita mig upp fyrir komandi skrif.
xxx Auður