Auður litla

Ég veit að ég er löt við að skrifa, en það virkar ekkert að reka á eftir mér;-)

laugardagur, apríl 26, 2003

Nú eru allir Svíarnir farnir og ég sakna stelpnanna minna. Ég fékk voða fínar gjafir frá þeim, eða 5 litlar Absolut flöskur með 5 mismunandi bragðtegundum (eiga eftir að koma sér vel) og svo fékk ég kökumix fyrir Kanadískar pönnukökur og voða fínt síróp með en er búin að nota það þar sem það var huggulegur fjölskyldu-morgunmatur á sumardaginn fyrsta.
Hann Þengill á afmæli í dag og óska ég honum hér með innilega til hamingju með daginn!!