Ég er búin að eiga svo frábæra viku! Ég er búin að vera í áheyrn alla vikuna, en þá fylgist ég með kennslu í bekknum sem ég er að fara að kenna í 2 vikur -eftir 2 vikur. Krakkarnir eru alveg yndislegir, skemmtilegir og sætir og tóku okkur (mér, Berglindi og Bergljótu bekkjarsystrum mínum) svo vel. Þau eru voða stillt og góð (allavega langoftast) og ég hlakka alveg afskaplega til að kenna þeim. Þegar við svo kvöddum þau og sögðumst koma aftur eftir 2 vikur komu þau öll og föðmuðu okkur og knúsuðu bless. Mér fannst þau algjörar snúllur! En hvað ég hlakka til að verð kennari, hihi. Það væri nú alveg óskandi að fá svona krakka til að kenna, en það verður allt bara að koma í ljós.
Previous Posts
- Sko stelpuna! Þetta gat ég!!
- Sá Möggu bekkjarsystur mína gera svona og ákvað að...
- Isss, ég ætla bara að láta aðeins frá mér heyra þa...
- Ég trúi ekki að ég sé ekki farin að minnast á hver...
- Oh, ég er svo stolt af mér eftir þessa helgi! Djam...
- Aumingja litli aumi bloggarinn hún Auður er búin a...
- Þegar ég var 6 ára átti ég rosalega margar systur ...
- Ég er orðin svo mikil skólastelp að ég var bara he...
- Vá! Haldiði að ég hafi ekki verið bloggari vikunna...
- Jæja, þá er sumarfríið mitt búið og ég aftur byrju...
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home