Auður litla

Ég veit að ég er löt við að skrifa, en það virkar ekkert að reka á eftir mér;-)

fimmtudagur, september 25, 2003

Aumingja litli aumi bloggarinn hún Auður er búin að vera lasin og hefur ekki gert neitt spennandi undanfarið. Ég átti rólega helgi í fyrsta skipti í síðan í byrjun sumars og gerði bara ekki neitt. Var reyndar að vinna um helgina og svo var það bara bein leið á videoleiguna (þar var einmitt september-tilboð) og ég hékk bara yfir videoi þegar aðrir fóru út að skemmta sér -ekki það að ég sé eitthvað ósátt við það.
Þessi helgi verður víst aðeins meira upplífgandi en sú síðasta (enda er ég öll að hressast) því ég fer í bekkjarpartý með bekknum mínum á föstudaginn og við ætlum að borða saman. Ég hlakka mikið til því ég er svo ánægð með bekkinn minn, þetta eru alveg frábærar stelpur.
Svo á laugardaginn hittist Matarklúbburinn (hafið e.t.v.heyrt e-ð um hann hér á þessari síðu) og það þarf nú ekki að taka það fram hvað ég hlakka til að mæta í hann.
Ég ætla líka að reyna (ég sagði reyna) að læra eitthvað um helgina þar sem þetta er frí helgi frá vinnunni og mér ber að nota tímann vel.
Vona að allir séu frískir og kátir!