Auður litla

Ég veit að ég er löt við að skrifa, en það virkar ekkert að reka á eftir mér;-)

föstudagur, febrúar 13, 2004

Isss, ég ætla bara að láta aðeins frá mér heyra það er allt fullt af lélegum bloggurum út um allt og það geriri ekkert til þó það sé einn í viðbót (sem er ég).
Það er allt gott að frétta af mér. Ég fór á alveg frábæra árshátíð á þriðjudaginn með skólanum mínum og skemmti mér alveg ótrúlega vel. Ég skemmti mér það vel að það þurfti hálf að reka okkur Ernu og Höllu út af staðnum þegar það var verið að loka. Minnit mig soldið á skólaböllin í gamladaga þega ég var enn í menntó, ég var alltaf með þeim síðustu út af Hótel Íslandi. Annars er búið að vera ágætt skrall á mér undanfarið. Fór rosa fínt út að borða með Sólarfilmu á Holtið, föstudag fyrir nokkrum vikum og lenti á brjáluðu fylleríi með kórnum í Skálholti daginn eftir það og er varla búin að jafna mig eftir það ennþá.
Ætla að gera óskup fátt þessa helgi nema að læra og vinna enda veitir ekki af. Fullt að gera í skólanum og svo vantar alltaf pening.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home