Auður litla

Ég veit að ég er löt við að skrifa, en það virkar ekkert að reka á eftir mér;-)

miðvikudagur, maí 21, 2003

Ég er var í alveg frábæru kórferðalagi frá föstudegi til þriðjudags og ég vil bara þakka kórfélögunum fyrir mikla skemmtun. Þeir sem skipulögðu ferðina eiga mikið hrós skilið! Mér fannst allt sem við gerðum skemmtilegt, kannski af því að VIÐ erum svo skemmtileg!
Núna veit ég að sumarið er komið því ég rakaði garðinn áðan eftir að pabbi var búin að slá og ég raka bara garðinn á sumrin. Svo eru öll trén orðin laufguð og ég sá fullt af lömbum og folöldum í ferðinni.