Auður litla

Ég veit að ég er löt við að skrifa, en það virkar ekkert að reka á eftir mér;-)

föstudagur, október 25, 2002

Tíhíhí, er í Odda og var í vísindaferð með mannfræðinemum (og ég er að læra...?)! Allir eru niðri að horfa á Stellu í orlofi sem ég elska og dái, en er nýbúin að horfa á með mömmu og pabba svo tölvunördinn í mér tók yfir og ég varð að fara og blogga!! En bara gaman af því!!
Er á leið í innflutningspartý hjá Margréti og Einari og hlakka mikið til þess. Var reyndar að komast að því að gjöfin til þeirra (sem ég eyddi öllum gærdeginum í að leita að + gjöfinni til Önnu og Hjalta) kemst ekki til skila því Tinna er með hana og hún er að faraí bekkjarpartý í kvöld og kemur ekki til Mínu svo gjöfin verður því að berast á morgun.
Skemmtið ykkur vel um helgina því það ætla ég að gera...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home